Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind?

Birtist fyrst á Temjum tæknina.

Spjall við Magnús Smára í hlaðvarpinu Temjum tæknina

Ég var gestur hjá Magnúsi Smára Smárasyni í hlaðvarpinu Temjum tæknina, sem Háskólinn á Akureyri gefur út og fjallar um gervigreind og fólk. Við settumst niður og ræddum spurningu sem ég velti fyrir mér nánast daglega í vinnunni hjá DataLab: Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind?

Meðal þess sem við fórum yfir:

  • Gamaldags spálíkön og spunagreind. Hver er munurinn á hefðbundnum vélnámslíkönum og nýrri spunagreind á borð við ChatGPT, og hvenær hentar hvort?
  • Óvissa og ofskynjanir. Gervigreindarlausnir snúast í eðli sínu um að leysa hið ófyrirséða. Það þýðir að óvissa er ekki galli sem við losnum við heldur eitthvað sem við þurfum að hanna í kringum.
  • AI Productivity Paradox. Af hverju skilar aðgangur að öflugum tólum sér ekki sjálfkrafa í aukinni framleiðni?
  • Færni framtíðarinnar. Er skortur á forriturum, eða er skorturinn frekar á tæknifólki með samkennd og heildarsýn?

Við enduðum á stærri spurningum um menntun, ábyrgð og hvernig við sem samfélag getum tryggt að tæknin þjóni mannlegum gildum, en ekki öfugt.

Takk fyrir spjallið, Magnús. Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum, t.d. Apple Podcasts og Podchaser.

Ef þú vilt spjalla um þetta, sendu mér línu á [email protected].