Eru störf iðnaðarmanna örugg fyrir gervigreindinni?
Ég fór í smá tilraunir með hvernig gervigreind gæti hjálpað mér við DIY verkefni á heimilinu sem ég þyrfti annars iðnaðarmann til að hjálpa mér við.
Hugmyndin mín var að:
- Ég lýsi vandamálinu fyrir gervigreindinni
- Gervigreindin býr til leiðbeiningar fyrir lausnina
- Gervigreindin gerir innkaupalista fyrir það sem vantar
Ákvað að prófa á tveimur tilfellum: Tengja blöndunartæki í bílskúrinn og smíða kofa í garðinum.
Stærsta skrefið var að smíða MCP server við byggingavöruverslun til að geta tengt hönnun lausnarinnar við hluti sem ég gæti keypt. Claude sagði mér að það væri auðveldara að smíða fyrir Byko en Húsasmiðjuna svo ég gerði það. Helsta flækjustigið þar var að orðaforðinn er virkilega sértækur og leitin gamaldags. Mögulega birti ég MCP serverinn sjálfan seinna og skrifa meira um það verkefni.
Ég er ekki byrjaður að fylgja leiðbeiningunum en fyrsta tilfinningin er að verkefni eins og pípulagnir séu verkefni sem þú vilt ekki klúðra því þú gætir lent í leka. Það má líkja því við hugbúnaðarverkefni sem snertir viðkvæm gögn og þarf því fagmann í verkið. Ég er hins vegar virkilega spenntur fyrir kofasmíðinni.
Það er virkilega gott að nota þetta til að kostnaðarmeta verkið. MCP serverinn virkar ótrúlega vel (út frá mínum takmörkuðu tilraunum) og ég sé risastór tækifæri fyrir byggingavöruverslanir í að smíða góða MCP servera sem kunna að finna réttu tólin og efnið í verkið fyrir þig, og jafnvel skills sem hjálpa þér við algeng verkefni. Þetta hlýtur innan skamms að verða table stakes eins og að hafa vefsíðu.
Varðandi áhrif á störf iðnaðarmanna er erfitt að læra réttu handtökin með því að lesa leiðbeiningar frá gervigreind, sama hversu flott 3d módel hún teiknar. Hins vegar held ég að iðnaðarmenn jafnt sem húseigendur geti grætt mikið á því að nýta tæknina.
Í myndbandinu sýni ég Claude artifactana sem urðu til.
Ef þú vilt spjalla um þetta, sendu mér línu á [email protected].